Æft við góðar aðstæður í Limassol
A-landslið karla æfir við góðar aðstæður í Limassol á Kýpur fyrir vináttulandsleikinn gegn heimamönnum á miðvikudag. Veður er gott, hlýtt en smá gola, aðstæður allar hinar bestu og góð stemmning í hópnum.
Leikurinn, sem fram fer á Antonis Papadopoulos leikvanginum í Larnaca, hefst kl. 16:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Ólafur Jóhannesson, þjálfari íslenska liðsins, mun tilkynna byrjunarliðið á leikdag.