Strákarnir í U21 æfa á keppnisvellinum í kvöld
Strákarnir í U21 landsliðinu eru staddir í Magdeburg þar sem þeir leika við Þjóðverja á morgun í undankeppni EM. Leikið verður á MDCC Stadium í Magdeburg og hefst leikurinn kl. 16:45 að íslenskum tíma.
Liðið æfir í kvöld á keppnisvellinum og eru aðstæður ágætar þó svo að töluvert hafi blásið í gær.
Íslenska liðið er sem stendur í öðru sæti riðilsins, hefur 12 stig eftir 5 leiki en Þjóðverjar eru í þriðja sæti með 7 stig eftir 4 leiki. Tékkar leiða riðilinn hafa fultt hús stiga etir 5 leiki.