Breytingar á hópnum fyrir vináttuleikinn við Kýpur
Ólafur Jóhannesson hefur þurft að gera breytingu á leikmannahóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Kýpur, sem fram fer ytra 3. mars. Þrír leikmenn sem valdir voru í hópinn verða ekki með. Jónas Guðni Sævarsson hefur verið kallaður inn í hópinn.
Eiður Smári Guðjohnsen fær frí í leiknum og verður því ekki með. Brynjar Björn Gunnarsson og Grétar Rafn Steinsson eiga við meiðsli að stríða og geta því ekki verið með.