Byrjunarliðið er mætir Svíþjóð á morgun
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Svíum á morgun, föstudag, á Algarve Cup. Leikurinn sem er annar leikur íslenska liðsins á mótinu, hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma. Sigurður Ragnar gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Bandaríkjunum.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður: Rakel Hönnudóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Sif Atladóttir
Varnartengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir
Hægri kantur: Rakel Logadóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Sóknartengiliður: Guðný Björk Óðinsdóttir
Framherji: Berglind Björg Þorvaldsdóttir