Kári kallaður í Kýpurhópinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, gerði í dag eina breytingu á hópnum er mætir Kýpur í vináttulandsleik 3. mars næstkomandi en leikið verður á Kýpur. Ólafur hefur valið Kára Árnason í hópinn og kemur hann í stað Hermanns Hreiðarssonar sem á við meiðsli að stríða.