Christine Beck dæmir Ísland - Bandaríkin
Það verður góðkunningi Íslendinga, þýski dómarinn Christine Beck, sem dæmir leik Íslands og Bandaríkjanna á Algarve Cup í dag. Christine var við stjórnvölinn á eftirminnilegum leik Íslands og Írlands á köldu októberkvöldi árið 2008 en þá tryggði íslenska liðið sér sæti í úrslitakeppni EM í Finnlandi.
Dómaratríóið í leiknum kemur allt frá Þýskalandi en alls eru 42 dómarar sem starfa á mótinu og koma þeir frá 30 löndum. Fyrir alla leiki mótsins í dag verður einnar mínútu þögn til minningar um þá sem látist hafa í miklum flóðum í Madeira í Portúgal.