• mán. 22. feb. 2010
  • Leyfiskerfi

Selfyssingar skila fjárhagsgögnum

umf_selfoss_logo
umf_selfoss_logo

Selfyssingar hafa nú skilað fjárhagslegum fylgigögnum með umsókn sinni um þátttökuleyfi í Pepsi-deildinni 2010.  Þar með hafa gögn frá 9 Pepsi-deildarfélögum borist og gögn eins félags eru í póstinum.  Einungis KR og Haukar eiga því eftir að skila þegar þetta er ritað.

Fjárhagsgögnum fylgja fjölmargar staðfestingar, s.s. á því að engin vanskil séu við leikmenn, þjálfara og aðra starfsmenn, sem og við önnur knattspyrnufélög vegna félagaskipta.

Minnt er á neðangreint ákvæði í leyfisreglugerð.


b) Tímamörk ekki uppfyllt.

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af því hve alvarlegt brotið er.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

-  Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

-  Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

-  Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

          Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.