Hópurinn fyrir Kýpurleikinn tilkynntur
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp sinn er mætir Kýpur í vináttulandsleik á Kýpur, miðvikudaginn 3. mars. Ólafur velur 20 leikmenn fyrir þennan leik sem er fyrsti vináttulandsleikur liðsins af þremur í marsmánuði.
Leikið verður við Kýpur 3. mars eins og áður sagði en framundan eru einnig vináttulandsleikir gegn Færeyjum og Mexíkó. Leikið verður gegn Færeyjum í Kórnum sunnudaginn 21. mars og þaðan verður svo haldið til Charlotte í Bandaríkjunum þar sem leikinn verður vináttulandsleikur gegn Mexíkó.