KSÍ B próf fer fram 6. mars
Laugardaginn 6. mars stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er opið öllum þjálfurum sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).
Prófað er úr öllu námsefni KSÍ I, II, III og IV og úr nýjustu útgáfu af knattspyrnulögunum. Engin hjálpargögn eru leyfð í prófinu. Ef þjálfurum sem hyggjast taka prófið vantar einhver gögn, vinsamlegast hafið samband við undirritaðan.
Prófið fer fram í fræðslusetri KSÍ í Laugardal, hefst stundvíslega kl. 10:00 og próftími er tvær klukkustundir. Þátttakendur sem búa á landsbyggðinni og vilja taka prófið í sinni heimabyggð, þurfa að hafa samband tímanlega við fræðslusvið KSÍ (dagur@ksi.is), svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir. Prófið byrjar á sama tíma um allt land.
Próftöku- og skírteinisgjald er 3.000 krónur.
Opið er fyrir skráningu í prófið en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða hringja í síma 510-2977. Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram við skráningu eru eftirfarandi: nafn, kennitala, símanúmer, tölvupóstfang, fæðingarstaður og félag.