KR og ÍA fengu Drago stytturnar
KR fékk afhenta Drago-styttuna svokölluðu í Pepsi-deild karla 2009 og ÍA fékk styttuna afhenta í 1. deild karla. Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna.
Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna stytturnar á 64. ársþingi KSÍ.