64. ársþingi KSÍ lokið
Ársþingi KSÍ, því 64. í röðinni, var slitið laust eftir kl. 16:00. Ragnhildur Skúladóttir kemur ný inn í stjórn KSÍ og tekur þar sæti Ingibjargar Hinrikdsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þá tekur Tómas Þóroddsson sæti landshlutafulltrúa Suðurlands í stað Einars Friðþjófssonar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Ýmsar tillögur lágu fyrir þinginu og má sjá hvernig þær voru afgreiddar sem og aðrar fréttir af þinginu hér.