Yngri kvennalandsliðin leika í Færeyjum í sumar
Dagana 23. og 24. júlí munu U17 og U19 kvennalandslið Íslands leika vináttulandsleiki við jafnaldra sína í Færeyjum. Hvort lið um leika 2 landsleiki en þessir leikir eru hluti af samstarfsverkefni knattspyrnusamband Íslands og Færeyja. Ekki hefur verið ákveðið hvar landsleikirnir fara fram í Færeyjum.
Færeyingar heimsóttu okkur á síðasta ári með sömu lið og léku þá fjóra landsleiki sem fóru fram í Hveragerði, Hvolsvelli og Þorlákshöfn.