U17 og U19 karla - Æfingar um komandi helgi
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið leikmenn fyrir þessar æfingar. Tveir hópar eru boðaðir hjá U19 karla, annar hópurinn er að mestu skipaður leikmönnum fæddum 1992 en hinn er skipaður leikmönnum fæddum 1993.