Hólmfríður heimsótti knattspyrnukrakka á Ísafirði og Súðavík
Á dögunum heimsótti landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir knattspyrnukrakka á Ísafirði og í Súðavík. Með Hólmfríði í för var Guðlaugur Gunnarsson grasrótarfulltrúi KSÍ. Hólmfríður mætti á æfingar hjá krökkunum, stjórnaði upphitun og tók þátt í æfingum. Þá ræddi hún við krakkana og áritaði myndir og plaköt í lok æfinganna.
Mikill áhugi var á þessum æfingum og greinilegt að það er mikill metnaður í krökkunum á þessum stöðum þegar kemur að knattspyrnunni.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.