• fös. 05. feb. 2010
  • Ársþing

Ársreikningur KSÍ 2009 birtur

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ)  birtir nú ársreikning sinn fyrir árið 2009. Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2009 námu 703 milljónum króna samanborið við 870 milljónir króna á árinu 2008. Lækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af lækkun á erlendum tekjum.  Rekstrarkostnaður KSÍ var nánast á áætlun en frávikin voru vegna aukinna landsliðsverkefna og ákvörðunar stjórnar KSÍ að taka á sig aukinn kostnað vegna dómara sem áður féll á aðildarfélögin.

Vaxtatekjur KSÍ á árinu 2009 voru um 53 milljónir króna og innleystur gengishagnaður um 38 milljónir króna sem er mikill viðsnúningur frá fyrra ári.    Hagnaður af rekstri KSÍ á árinu 2009 var 50 milljónir króna sem er mun betra heldur en samþykkt áætlun gerði ráð fyrir.

Styrkir til aðildarfélaga á árinu námu um 96 milljónum króna.  Voru það styrkir úr mannvirkjasjóði, styrkir til félaga vegna barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira. 

Erlend skammtímalán, að upphæð um 600 milljónir króna,  sem tekin voru vegna framkvæmda við skrifstofu- og fræðslusetur KSÍ voru greidd upp á árinu 2009 og hvíla nú engar vaxtaberandi skuldir á KSÍ í fyrsta skipti í rúman áratug.

Fjárhagstaða KSÍ er traust við áramót, lausafjárstaða góð, handbært fé um 328 milljónir króna og eigið fé tæpar 234 milljónir króna.

Ársreikningur KSÍ 2009

Ársskýrsla KSÍ 2009

Hér að neðan má sjá ársskýrslu KSÍ fyrir starfsárið 2009

Ársskýrsla

Fjárhagsáætlun KSÍ fyrir 2010

Hér að neðan má sjá fjárhagsáætlun KSÍ fyrir starfsárið 2010

Fjárhagsáætlun