Ráðstefna evrópskra dómara á Möltu
Mánudaginn 1. febrúar hittast fremstu dómarar Evrópu á Möltu en þar verður haldin í átjánda skiptið ráðstefna fyrir Elite/Premier dómara UEFA. Á sama stað verður um leið haldin nýliðaráðstefna nýrra alþjóðlegra dómara en sú ráðstefna er haldin í nítjánda skiptið.
Íslenskir dómarar eiga fulltrúa á báðum þessum ráðstefnum, þeir Þorvaldur Árnason og Þóroddur Hjaltalín sitja nýliðaráðstefnuna en Kristinn Jakobsson verður á Elite/Premier ráðstefnunni.