Vináttulandsleikur gegn Liechtenstein 11. ágúst
Knattspyrnusambönd Íslands og Liechtenstein hafa náð samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna mætist í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 11. ágúst. Þetta er í sjötta skiptið sem þjóðirnar mætast í landsleik. Íslendingar hafa þrisvar farið með sigur af hólmi, einu sinni hefur orðið jafntefli og Liechtenstein hefur einu sinni borið sigur úr býtum.
Þjóðirnar mættus síðast í vináttulandsleik á æfingamóti á La Manga í febrúar á síðasta ári og sigruðu Íslendingar þar með tveimur mörkum gegn engu.