• mið. 13. jan. 2010
  • Leyfiskerfi

Framarar sækja styrk í hvítt og blátt

100 ára afmælismerki Fram
Fram_100_ara

"Sækjum styrk í hvítt og blátt, stefnum öll í sömu átt, hvikum hvergi þar til marki er náð".  Þetta er úr texta Framherjalagsins, lagi stuðningsmanna Fram.  Framarar hafa nú skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010.  Þar með hafa 10 félög í Pepsi-deild skilað gögnum, aðeins Selfoss og Stjarnan sem eiga eftir að skila. 

Lokaskiladagur þessara gagna er föstudaginn 15. janúar, þannig að leyfisgögnum mun væntanlega halda áfram að rigna yfir leyfisstjórn á næstu dögum.  Fjárhagslegum gögnum er síðan skilað eigi síðar en 20. febrúar.

Þau gögn sem leyfisumsækjendur eiga að skila fyrir 15. janúar snúa að knattspyrnulegum þáttum (þjálfun og uppeldi ungra leikmanna), mannvirkjaþáttum (eignarréttur aðstöðu eða samningur um notkun, aðstaða áhorfenda, fjölmiðla og iðkenda), starfsfólki og stjórnun (starfslýsingar, ráðningarsamningar, menntun og reynsla) og lagalegum forsendum (lagalegur grundvöllur félags).

Minnt er á neðangreint úr leyfisreglugerðinni:

b) Tímamörk ekki uppfyllt.

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af því hve alvarlegt brotið er.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

-  Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

-  Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

-  Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.