Frá afhendingu grasrótarverðlauna
Í gær fengu Breiðablik, Fjarðabyggð/Leiknir og KR afhent grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA og um leið vakin athygli á mikilvægi grasrótarstarfs félaganna. Heimasíðan hitti fulltrúa félaganna á vettvangi en það var hinn lagvissi Dagur Sveinn Dagbjartsson sem tók viðtölin.
Rætt er við Arnar Guðmundsson frá Fjarðabyggð/Leikni, Marinó Önundarson hjá Breiðablik og Stefán Arnarson hjá KR.