Dómararnir á fullu á æfingum
Dómararnir okkar sem dæma í landsdeildunum hafa verið á fullu á æfingum frá því í nóvember á síðasta ári og er hvergi slakað á. Fréttastofa Stöðvar 2 kíkti á æfingar hjá dómurunum, bæði síðasta vor og svo nú fyrr í vetur.
Samstarf er á milli KSÍ og Háskólans í Reykjavík varðandi þjálfun dómara og er m.a. rætt við Þórdísi Gísladóttur frá HR um þetta samstarf.