Úrtaksæfing hjá U17 kvenna í Fjarðabyggðahöllinni
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur boðað 21 leikmann á úrtaksæfingu, miðvikudaginn 20. janúar og fer hún fram í Fjarðabyggðahöllinni. Leikmennirnir koma frá fimm félögum og verður fundur með leikmönnum að æfingu lokinni.