Grasrótardagur UEFA verður 19. maí
Framkvæmdastjórn UEFA hefur ákveðið að sérstakur grasrótardagur UEFA verði haldinn þann 19. maí næstkomandi. UEFA mun þá vekja athygli á grasrótarstarfi í aðildarlöndum sínum í samstarfi við aðildarþjóðirnar og nota til þess "Meistaradeildarvikuna" en leikið verður til úrslita í Meistardeild kvenna 20. maí og Meistaradeild karla 22. maí og fara báðir leikirnir fram í Madrid.
UEFA mun þann 8. febrúar næstkomandi opna heimasíðu þar sem þessi dagur verður kynntur nánar en þá eru 100 dagar í sjálfan grasrótardaginn. KSÍ mun að sjálfsögðu vera með grasrótarviðburði í kringum grasrótardaginn og verða þeir nánar auglýstir þegar nær dregur.