Færeyingar mæta í Kórinn 21. mars
Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnusamband Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 21. mars. Þetta er þriðja árið í röð sem að þjóðirnar leika vináttulandsleik í Kórnum í marsmánuði.
Þegar þjóðirnar áttust við í mars í fyrra höfðu frændur okkar betur með tveimur mörkum gegn einu. Árið 2008 léku þjóðirnar fyrsta karlalandsleikinn sem leikinn var innanhúss hér á landi og sigruðu þá Íslendingar með þremur mörkum gegn engu.