Sigurður Ragnar velur fyrsta æfingahópinn fyrir nýtt ár
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið æfingahóp fyrir fyrstu æfingahelgina á nýju ári en æft verður 9. - 10. janúar. Fjórar æfingahelgar eru fyrirhugaðar fyrir fyrsta verkefni kvennalandsliðsins sem er hið sterka Algarve Cup. Ísland leikur þar í B-riðli en mótið hefst 24. febrúar næstkomandi.
Í fyrsta æfingahópinn eru eingöngu leikmenn sem leika hér á landi og velur Sigurður Ragnar 25 leikmenn í þennan æfingahóp.