• þri. 22. des. 2009
  • Leyfiskerfi

Það er létt yfir lautarferð hjá Fylki

Fylkir
fylkir1b

Fylkismenn hafa skilað fylgigögnum með umsókn sinni um þátttökuleyfi í Pepsi-deild karla 2010.  Þar með hafa sex félög skilað gögnum, fjögur í Pepsi-deild og tvö í 1. deild.

Þegar Valsmenn skiluðu gögnunum í fyrra þann 18. desember, var sérstaklega vakin athygli á því að aldrei áður hafði það gerst hér á landi að leyfisumsækjandi skili gögnum fyrir jól.  Nú hefur það þegar gerst að sex félög hafa skilað gögnum, Valur og Fylkir eins og greint er frá hér að framan, KR, Keflavík, KA og loks ÍR, sem skilaði reyndaráður en eiginlegt leyfisferli hófst!

Þau gögn sem leyfisumsækjendur eiga að skila fyrir 15. janúar snúa að knattspyrnulegum þáttum (þjálfun og uppeldi ungra leikmanna), mannvirkjaþáttum (eignarréttur aðstöðu eða samningur um notkun, aðstaða áhorfenda, fjölmiðla og iðkenda), starfsfólki og stjórnun (starfslýsingar, ráðningarsamningar, menntun og reynsla) og lagalegum forsendum (lagalegur grundvöllur félags).

Fjárhagslegum gögnum er síðan skilað fyrir 20. febrúar.