Upp á Tindinn, Keflavík!
Keflavíkingar skiluðu í dag fylgigögnum með umsókn sinni um þátttökuleyfi í Pepsi-deild akrla 2010. Gögnin sem skilað er nú snúa að öllum þáttum leyfiskerfisins öðrum en fjárhagslegum. Þar með hafa þrjú Pepsi-deildarfélög skilað, en áður höfðu Valur og KR skilað sínum gögnum, þrátt fyrir að lokaskiladagur þessara gagna sé ekki fyrr en 15. janúar.