U19 kvenna leika einnig í Búlgaríu í undankeppni EM
Í dag var einnig dregið í undankeppni fyrir EM 2010/2011 hjá U19 kvenna en áður var búið að draga í sömu keppni hjá U17 kvenna. Stelpurnar í U19 munu leika í Búlgaríu, rétt eins og stöllur þeirra í U17. Mótherjarnir verða, ásamt heimastúlkum, Úkraína og Ísrael og verður leikið dagana 11. - 16. september.
Á morgun verður svo dregið í milliriðla fyrir EM 2009/2010 en þar eru U19 kvenna í pottinum. Fyrirliði U19 kvenna sem lék í úrslitakeppninni í Hvíta Rússlandi fyrr á þessu ári, Fanndís Friðriksdóttir, tók við háttvísiverðlaunum UEFA við þetta tækifæri og aðstoðaði svo við dráttinn.