• mán. 07. des. 2009
  • Landslið

U19 karla til Wales í undankeppni EM 2010/2011

EM U19 landsliða karla
em_u19_karla

Í dag var einnig dregið í undankeppni fyrir EM 2010/2011 hjá U19 karla en einnig var dregið í sömu keppni hjá U17 karla og er greint frá þeim drætti annars staðar hér á síðunni.  Strákarnir í U19 munu leika í riðli með Kazakstan, Tyrklandi og Wales og verður riðillinn leikinn í Wales, dagana 20. - 25. október.