U17 karla leikur hér á landi í undankeppni EM
Í dag var dregið í riðla fyrir undankeppni EM 2010/2011 hjá U17 karla en dregið var í höfuðstöðvum UEFA. Ísland er í riðli með Tyrkjum, Tékkum og Armenum og verður riðillinn leikinn hér á landi dagana 22. - 27. september.