• mán. 30. nóv. 2009
  • Dómaramál

Kristinn dæmir í Evrópudeildinni á fimmtudag

Merki Evrópudeildar UEFA
Europa-League-logo_UEFA

Kristinn Jakobsson og félagar verða á fullri ferð á fimmtudaginn þegar þeir verða að störfum á leik Toulouse frá Frakklandi og Partizan Belgrad frá Serbíu en leikurinn er í J riðli í Evrópudeild UEFA.

Kristinn mun dæma leikinn og aðstoðardómarar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson.  Fjórði dómari verður Jóhannes Valgeirsson.  Eins og í öllum leikjum í Evrópudeildinni þá er "fimm dómara kerfi" við lýði í þessum leik.  Aukaaðstoðardómarar í leiknum verða þeir Magnús Þórisson og Þorvaldur Árnason og eru þeir staðsettir við sitthvort markið.