• fim. 19. nóv. 2009
  • Leyfiskerfi

Valsmenn eru léttir í lund þegar kemur að leyfiskerfinu

Valur
Valur2008

Valsmenn urðu í dag fyrstir félaga í Pepsi-deild karla til að skila fylgigögnum með leyfisumsókn sinni fyrir keppnistímabilið 2010.  Skiladagur gagna, annarra en fjárhagslegra, er 15. janúar.  Valsmenn voru einnig fyrstir Pepsi-deildarfélaga til að skila fyrir síðasta keppnistímabil og eru því í fararbroddi annað árið í röð.

Þegar Valsmenn skiluðu gögnunum í fyrra þann 18. desember, var sérstaklega vakin athygli á því að aldrei áður hafði það gerst hér á landi að leyfisumsækjandi skili gögnum fyrir jól.  Nú hefur það þegar gerst að tvö félög hafa skilað gögnum, Valur eins og greint er frá hér að framan, og ÍR, sem skilaði áður en eiginlegt leyfisferli hófst!

Þau gögn sem leyfisumsækjendur eiga að skila fyrir 15. janúar snúa að knattspyrnulegum þáttum (þjálfun og uppeldi ungra leikmanna), mannvirkjaþáttum (eignarréttur aðstöðu eða samningur um notkun, aðstaða áhorfenda, fjölmiðla og iðkenda), starfsfólki og stjórnun (starfslýsingar, ráðningarsamningar, menntun og reynsla) og lagalegum forsendum (lagalegur grundvöllur félags).

Fjárhagslegum gögnum er síðan skilað fyrir 20. febrúar.