Sviss heimsmeistari U17 karla
Síðastliðinn sunnudag lauk Heimsmeistarakeppni U17 karla en úrslitakeppnin fór fram að þessu sinni í Nígeríu. Það var Sviss sem kom mörgum á óvart og tryggði sér Heimsmeistaratitilinn eftir sigur á heimamönnum í úrslitaleik, 1 - 0.
Leið þeirra að þessum titili byrjaði hér á Íslandi í september 2008 en þá fór fram riðill í undankeppni fyrir EM 2009. Áttust hér við Sviss, Noregur, Úkraína og Ísland. Fór riðillinn þannig að Noregur og Sviss tryggðu sér sæti í millirðlum. Sviss bar sigur úr býtum á Íslendingum, 1 - 2 en gerði svo markalaust jafntefli í hinum leikjunum báðum. Þeir tryggðu sér svo sæti í úrslitakeppninni er fór fram í Þýskalandi í maí og lentu þar í 3 - 4 sæti sem gaf þátttökurétt á HM í Nígeríu.
Alls voru 12 leikmenn Sviss sem léku hér á landi sem voru einnig í heimsmeistaraliði Sviss í Nígeríu, þeirra á meðal Haris Seferovic sem að skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum gegn heimamönnum.