Tæplega 100 leikmenn boðaðir á æfingar hjá U17 og U19 karla
Tæplega 100 leikmenn eru boðaðir á úrtaksæfingar hjá landsliðum U17 og U19 karla um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni. Landsliðsþjálfararnir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson hafa valið úrtakshópa fyrir þessar æfingar.