Landsdómararáðstefna var haldin um helgina
Þriðja Landsdómararáðstefna ársins 2009 var haldin síðastliðinn laugardag og fór hún fram í höfuðstöðvum KSÍ.
Aðalfyrirlesarinn á ráðstefnunni var Thor Aage Egeland sálfræðingur norska Knattspyrnusambandsins en hann kemur einnig að þjálfun dómara hjá UEFA og FIFA.
Erindi frá Háskólanum í Reykjavík voru fyrirferðarmikil á ráðstefnunni enda hafa KSÍ og HR gert með sér samstarfsamning um að HR sjái um þjálfun dómara í vetur auk innleggs í sálfræði og næringarfræði.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá ráðstefnunni.