U21 karla leikur gegn San Marínó á föstudag
Strákarnir í U21 leika gegn San Marínó á morgun, föstudaginn 13. nóvember, en leikurinn er liður í undankeppni EM. Þetta er síðasti leikur Íslands á þessu ári í þessari keppni en liðið er í öðru sæti riðilsins sem stendur með níu stig eftir fjóra leiki. Tékkar eru í efsta sætinu með fullt hús eftir fjóra leiki.
Vel fer um hópinn í San Marínó, æft er tvisvar í dag á keppnisvellinum en leikurinn á morgun hefst kl. 19:30 að íslenskum tíma.