Æfingar og æfingaleikur hjá U17 og U19 kvenna
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og hafa landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, valið hópa fyrir þessar æfingar. Hóparnir munu einnig etja kappi í æfingaleik á sunnudaginn.