Undirbúningur hafinn hjá dómurum
Í gær hófst undirbúningur dómara fyrir næsta keppnistímabil. Æft er á tveimur stöðum á landinu þ.e.a.s. á Akureyri og í Reykjavík.
KSÍ og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér samstarfssamning um að HR muni skipuleggja þjálfun dómara í vetur.
Í gær var fyrsta æfing vetrarins þar sem dómararnir voru mældir í bak og fyrir. KSÍ væntir mikils af þessu samstarfi sem felur auk þess í sér íþróttasálfræði og næringarfræði.