Sótti UEFA-námskeið í viðburðastjórnun
Ómar Smárason, leyfis- og markaðsstjóri KSÍ, sótti í vikunni UEFA-námskeið sem haldið var í Istanbul í Tyrklandi. Námskeiðið er hluti af KISS (Knowledge and Information Sharing Scenario) prógrammi UEFA og var beint framhald af KISS námskeiði sem haldið var á Íslandi í maí 2009. Viðfangsefnið var viðburðastjórnun (Event Management).
Þátttakendur komu frá 15 aðildarlöndum UEFA, en þó enginn frá stærstu samböndunum, allt frá millistórum og litlum samböndum. Farið var á leik Besiktas og Wolfsburg í Meistaradeild UEFA þar sem allur undirbúningur leiksins var skoðaður gaumgæfilega og fylgst með framkvæmd hans.
Farið var yfir hin ýmsu viðfangsefni tengt viðburðastjórnun í tengslum við knattspyrnuleik af. Gæsla og öryggi, aðskilnaður áhorfenda, salernisaðstaða, miðasala, veitingar (almennar og VIP), fjölmiðlar (sjónvarp sérstaklega), og öll önnur aðstaða og þjónusta sem tengist leik í riðlakeppni Meistaradeildar UEFA. Til að kynnast viðfangsefninu sem best var leikvangur Besiktas, Unönü, heimsóttur daginn fyrir leik liðsins við Wolfsburg í Meistaradeildinni, og svo aftur á leikdegi.