68 leikmenn boðaðir á úrtaksæfingar um helgina
Úrtaksæfingar verða hjá U17 og U19 karla um helgina en alls hafa 68 leikmenn verið boðaðir til æfinga af landsliðsþjálfurunum, Gunnari Guðmundssyni og Kristni Jónssyni. Æfingarnar verða í Kórnum og í Egilshöll.