Landsliðshóparnir fyrir leiki gegn Íran og Lúxemborg
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópa fyrir tvo vináttulandsleiki sem fara fram 10. og 14. nóvember næstkomandi. Leikið verður við Íran í Teheran þriðjudaginn 10. nóvember og við Lúxemborg í Lúxemborg, laugardaginn 14. nóvember.
Valdir hafa verið tveir hópar fyrir þessa leiki en fyrri leikdagurinn er ekki alþjóðlegur leikdagur og því eiga ekki allir landsliðsmenn heimangengt í þann leik.
Ólafur velur alls 31 leikmann í þessa tvo landsliðshópa en níu leikmenn eiga sæti í báðunum hópunum. Fjórir nýliðar eru í þessum hópum þar af á Ari Freyr Skúlason sæti í báðum hópunum.