Soffíu Gunnarsdóttur bætt í hópinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari hefur bætt Soffíu Gunnarsdóttur, úr Stjörnunni, inn í hópinn sem mætir Frakklandi og Norður Írlandi í undankeppni HM 2011. Soffía hélt til móts við hópinn í dag og verður tilbúinn í slaginn á morgun þegar Ísland mætir Frökkum í Lyon.
Liðið æfði í dag á keppnisvellinum í Lyon og samkvæmt upplýsingum frá fararstjórn hópsins er völlurinn einfaldlega frábær og mannvirkið allt hið glæsilegasta. Sara Björk Gunnarsdóttir gat ekki verið með á æfingunni vegna veikinda. Allir aðrir leikmenn hópsins æfðu í dag og þrátt fyrir einhver smávægileg meiðsli, eru allir leikfærir fyrir morgundaginn enda mikið í húfi.
Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu en útsending þar hefst kl. 14:20.