KSÍ IV þjálfaranámskeið 6.-8. nóvember
KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 6.-8. nóvember. Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður birt síðar.
Bóklegi hluti námskeiðsins fer fram í höfuðstöðvum KSÍ og verklegi þátturinn í Kórnum í Kópavogi.
Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa KSÍ III þjálfaranámskeið og skilað verkefni af því námskeiði.
Skráning á KSÍ IV er í fullum gangi og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða með því að hringja í síma 510-2977.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa og fylgja skráningu:
- Nafn
- Kennitala
- Símanúmer
- Tölvupóstfang
- Félag
Þátttökugjald er kr. 20.000. Hægt er að greiða á staðnum eða með því að leggja inn á reikning Knattspyrnusambands Íslands:
0101-26-700400
Kt. 700169-3679
Æskilegt er að fólk sem greiðir í heimabanka sendi kvittun í tölvupósti á dagur@ksi.is