Um 70 leikmenn á úrtaksæfingum hjá U17 og U19 karla um helgina
Úrtaksæfingar verða um komandi helgi hjá U17 og U19 karlalandsliðum Íslands. Þjálfararnir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson hafa valið um 70 leikmenn til þessara æfinga sem fara fram í Egilshöll og Kórnum.
Fundur með þjálfurum 3. flokks karla
Landsliðsþjálfarar U-17 og U-16 ára landsliða karla í knattspyrnu boða til fundar með þjálfurum 3. flokks karla í knattspyrnu laugardaginn 24. október n.k. kl. 15:45 í Kórnum í Kópavogi.
Fundarefni er kynning á starfi landsliðanna og samskipti og samvinna þjálfara.
Fyrir fundinn fer fram æfing U-17 ára liðsins frá kl. 14:00 – 15:30.