Fjárhagsleg háttvísi
Ómar Smárason leyfisstjóri KSÍ og Lúðvík Georgsson formaður leyfisráðs sátu í vikunni ráðstefnu UEFA um sérstakt verkefni sem verið er að setja í gang og fjallar um fjárhagslega háttvísi hjá knattspyrnufélögum- Financial Fair Play. Þetta verkefni er hluti af leyfiskerfi UEFA og var ráðstefnan, sem haldin var í Genf í Sviss, sótt af fulltrúum allra aðildarþjóða sambandsins.
Sett verður á fót sérstakur starfshópur – Club Financial Control Panel – sem mun sjá um framkvæmd þessa verkefnis. Fulltrúar starfshópsins munu heimsækja 10 knattspyrnusambönd á ári hverju, skoða gögn allra þeirra félaga sem leika í UEFA-mótum, og gefa skýrslu til UEFA ásamt því að gera tillögur að meðferð mála til aganefndar UEFA, þar sem við á.
Sérstaklega verður tekið á því að félögin geti ekki verið í vanskilum við önnur félög vegna félagaskipta, eða við leikmenn og þjálfara vegna vangoldinna launa. Þá verður lögð mikil áhersla á að rekstur félaga verði innan skynsamlegra marka og að félögin geti ekki eytt um efni fram ár eftir ár.
Þó svo að hér eigi að vera ein nálgun gagnvart öllum liðum í Evrópu, þá liggur samt fyrir að nálgunin gagnvart liðum frá Íslandi verður ekki sú sama og gagnvart liðum frá stærri löndunum. Liðum verður skipt í þrjá flokka – stór, miðlungs og lítil. Litlu liðin (þ.á.m. Ísland) fá sérstaka meðferð. Þessu verkefni er fyrst og fremst beint að stóru þjóðunum og miðlungs.