Byrjunarliðið gegn Suður Afríku tilbúið
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem að mætir Suður Afríku kl. 18:10 í kvöld á Laugardalsvelli. Ólafur hefur einnig gert eina breytingu á hópnum, Björgólfur Takefusa kemur inn í hópinn í stað Eiðs Smára Guðjohnsen sem á við meiðsli að stríða.
Byrjunarliðið er þannig skipað:
Markvörður: Árni Gautur Arason
Hægri bakvörður: Grétar Rafn Steinsson
Vinstri bakvörður: Indriði Sigurðsson
Miðverðir: Kristján Örn Sigurðsson og Ragnar Sigurðsson
Tengiliðir: Brynjar Björn Gunnarsson, fyrirliði, Aron Einar Gunnarsson og Veigar Páll Gunnarsson
Hægri kantur: Rúrik Gíslason
Vinstri kantur: Emil Hallfreðsson
Framherji: Garðar Jóhannsson