U19 karla mætir Búlgörum í dag - Byrjunarliðið tilkynnt
Strákarnir í U19 karla mæta Búlgörum í dag en leikurinn er lokaleikur liðsins í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Bosníu. Með sigri getur íslenska liðið tryggt sér sæti í milliriðlum en verður þá að treysta á að Norður Írar vinni ekki sigur á heimamönnum.
Leikurinn hefst kl 13:00 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt og er það sama lið og byrjaði leikinn gegn Norður Írum sem endaði með markalausu jafntefli.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Arnar Darri Pétursson
Hægri bakvörður: Haukur Heiðar Hauksson
Vinstri bakvörður: Gísli Páll Helgason
Miðverðir: Stefán Ragnar Guðlaugsson og Brynjar Gauti Guðjónsson
Tengiliðir: Guðlaugur Victor Pálsson, Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði og Andri Fannar Stefánsson
Hægri kantur: Guðmundur Magnússon
Vinstri kantur: Ólafur Karl Finsen
Framherji: Pape Mamadou Faye