Vináttulandsleikur gegn Íran 10. nóvember
Knattspyrnusambönd Írans og Íslands hafa náð samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 10. nóvember næstkomandi. Leikið verður á Azadi vellinum í höfuðborg Írans, Teheran. Þetta er í fyrsta skipti sem að landsleikur í knattspyrnu fer fram á milli þessara þjóða.
Leikdagurinn 10. nóvember er ekki alþjóðlegur leikdagur en frá Íran fer íslenska landsliðið til Lúxemborg þar sem leikinn verður vináttulandsleikur við heimamenn, laugardaginn 14. nóvember.