• fös. 09. okt. 2009
  • Landslið

U19 karla mætir Norður Írum í dag - Byrjunarliðið tilbúið

U19 landslið karla
ksi-u19karla

Strákarnir í U19 mæta jafnöldrum sínum frá Norður Írlandi í dag en leikurinn er liður í undankeppni EM.  Þetta er annar leikur liðsins í keppninni sem fer fram í Bosníu en strákarnir töpuðu gegn heimamönnum með einu marki gegn engu í fyrsta leiknum.  Norður Írar og Búlgarir gerðu jafntefli í fyrstu umferðinni, 1 - 1.  Leikurinn í dag hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Kristinn R. Jónsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn og gerir fjórar breytingar frá fyrsta leiknum.

Byrjunarliðið (4-5-1):

Markvörður: Arnar Darri Pétursson

Hægri bakvörður: Haukur Heiðar Hauksson

Vinstri bakvörður: Gísli Páll Helgason

Miðverðir: Stefán Ragnar Guðlaugsson og Brynjar Gauti Guðjónsson

Tengiliðir: Guðlaugur Victor Pálsson, Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði og Andri Fannar Stefánsson

Hægri kantur: Guðmundur Magnússon

Vinstri kantur: Ólafur Karl Finsen

Framherji: Pape Mamadou Faye