• mið. 07. okt. 2009
  • Landslið

Aron Einar dregur sig út úr U21 hópnum

A landslið karla
ksi-Akarla

Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson hefur þurft að draga sig út úr hópnum hjá U21 karla en leikið verður við San Marínó, föstudaginn 9. október á Akranesvelli.  Aron Einar á við meiðsli að stríða en hann mun verða í hópnum þegar A landsliðið mætir Suður Afríku í vináttulandsleik, þriðjudaginn 13. október.  Fyrr þann sama dag leikur svo U21 karla við Norður Íra á Grindavikurvelli.