Jafntefli gegn Bosníu í lokaleik hjá U17 karla
Strákarnir í U17 gerðu jafntefli í gær við Bosníu í lokaleik liðsins í undankeppni EM en leikið var í Wales. Lokatölur urðu 1 -1 en Bosníumenn höfðu eins marks forystu í leikhléi. Íslenska liðið lék manni færra allan síðari hálfleikinn eftir að þeir misstu mann af velli vegna tveggja áminninga undir lok fyrri hálfleiks.
Bjarni Gunnarsson jafnaði metin í síðari hálfleik í þessum hörkuleik en riðillinn var ákaflega jafn og bar lítið á milli liðanna í riðlinum. Wales lagði Rússa í hinum leik riðilsins og skoruðu þar 2 mörk á lokamínútunum eftir að Rússar urðu tveimur færri.
Íslenska liðið endaði í þriðja sæti riðilsins en tvær efstu þjóðirnar, Wales og Bosnía, komast áfram í milliriðla. Enn er þó möguleiki fyrir íslenska liðið að komast áfram en tvær þjóðir með bestan árangur í þriðja sæti komast áfram. Er þá einungis teknir með leikir gegn tveimur efstu þjóðunum í riðlinum og í þeim fékk Ísland 1 stig og er með markatöluna 3 - 4. Riðlarnir eru 13 talsins og er nokkrum þeirra þegar lokið og er Ísland áfram eins og staðan er núna.